Afturelding hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni.
Hallur Flosason hefur skrifað undir samning við Aftureldingu og mun bakvörðurinn leika þar út tímabilið.
Hallur kemur til Aftureldingar frá ÍA þar sem hann lék sex leiki í Bestu deildinni í sumar.
Allan sinn feril hefur Hallur leikið fyrir ÍA og á að baki vel yfir 150 leiki fyrir liðið..
Afturelding er í sjötta sæti Lengjudeildarinnar með 19 stig eftir 13 umferðir.