Fyrrum knattspyrnumaðurinn Gabby Agbonlahor segir Newcastle hafa gert mistök með því að greiða 25 milljónir punda fyrir Chris Wood í janúar.
Wood var á mála hjá Burnley er Newcastle virkjaði klásúlu í samningi hans í janúar og keypti hann fyrir 25 milljónir punda.
Framherjinn skoraði aðeins tvö mörk í sextán leikjum fyrir Newcastle eftir áramót.
„Þeir þyrftu annan framherja til að keppa við Wilson um stöðuna. Wood er ekki nógu góður. Það var bilað að kaupa hann fyrir 25 milljónir punda,“ sagði Abbonlahor.
Newcastle tók við sér í deildinni eftir áramót og hafnaði í ellefta sæti eftir að hafa verið í fallbaráttu fyrir áramót.
Burnley féll úr deildinni á lokadegi úrvalsdeildarinnar eftir harða fallbaráttu við Leeds.