„Ég er svekktur að vinna ekki en við töpuðum allavega ekki,“ sagði Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður, eftir 1-1 jafntefli gegn Albönum í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli í kvöld.
„Þetta er skref fram á við en við áttum ekki nægilega góðan fyrri hálfleik, þó við höfum fengið betri færi en þeir. En í seinni hálfleik tökum við öll völd.“
Rúnar var spurður út í markið sem íslenska liðið fékk á sig í kvöld þar sem einhverjir settu spurningamerki við hann. „Við vorum aðeins of passívir. Þeir eru út við hornfána og ná að komast inn í teiginn án þess að lenda í tæklingu.“
„Ég á eftir að sjá þetta aftur. Ég ætlaði ekki að halda þessum bolta, þetta er af það stuttu færi og boltinn blautur, grasið blautt. Það er svo smá happa glappa með frákastið.“
Rúnar telur liðið á réttri leið. „Mér finnst það en við þurfum að læra fljótt. Það á ekki að þurfa mark til að við byrjum að spila fótbolta. Við spilum með smá ótta kannski. Við sýnum hversu góðir við erum þegar við þorum að spila og taka völdin.“