Víkingur Reykjavík tekur í kvöld á móti Levadia Tallin í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á Víkingsvelli. Sigurvegari viðureignarinnar leikur hreinan úrslitaleik við Inter Club d’Escaldes frá Andorra um sæti í undankeppni Meistaradeildarinnar á föstudaginn kemur.
Það er mat manna, út frá styrkleikum liðanna í hinni viðureigninni sem fór fram fyrr í dag, að sigurvegari kvöldsins muni eiga greiða lið í undankeppni Meistaradeildarinnar.
Hér gefur að líta byrjunarlið Víkinga í leik kvöldsins sem hefst klukkan 19:30. Þórður Ingason stendur í markinu hjá Víkingum eftir að Ingvar Jónsson meiddist í landsliðsverkefni á dögunum. Þá er Pablo Punyed heill heilsu og byrjar í miðjunni.
Víkingar eru á góðu flugi um þessar mundir og hafa unnið fjóra síðustu leiki sína í deild og bikar. Liðið er sem stendur í 3. sæti Bestu deildarinnar með 19 stig.
Arnar Bergmann Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga var í viðtali við íþróttadeild Torgs á dögunum þar sem hann hafði þetta að segja um viðureign kvöldsins gegn Levadia:
„Við erum mjög spenntir. Það er ekki á hverjum degi sem það eru Evrópuleikir í Víkinni. Það er líka gríðarleg ábyrgð á okkur að gera þetta eins og menn út af núverandi stöðu íslenskra liða í Evrópu. Við þurfum að fá þetta sæti til baka.“
Ísland missti eitt sæti í Evrópukeppni frá og með síðustu leiktíð vegna slakrar frammistöðu íslenskra félagsliða í Evrópuleikjum undanfarin ár.
Arnar býst við krefjandi Evrópuverkefni fram undan. Hann bendir á að Flora Tallin, sem leikur í sömu deild og Levadia, hafi komist í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar í fyrra en þó ekki tekist að skáka Levadia heima fyrir.
„Þetta er allt annar fótbolti en við fáum að venjast hér heima. Öll smáatriði þurfa að vera 100 prósent á hreinu. Og við erum að mæta liði sem er sterkt. Flora Tallin komst í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar í fyrra og þeir unnu ekki einu sinni deildina, heldur þetta lið. Þannig að þetta eru tvö langbestu liðin í Eistlandi. Þetta verður hörkuleikur.“