Bayern Munchen og Barcelona færast nær samkomulagi um kaup síðarnefnda félagsins á Robert Lewandowski ef marka má frétt Sport.
Það er ekkert leyndarmál að Lewandowski vill fara frá Bayern. Má segja að hann sé kominn í stríð við félagið eftir átta ár á mála hjá því.
Bayern vonast til þess að fá 50 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Þýska félagið hefur nú þegar hafnað einu tilboði frá Barcelona sem var langt frá uppsetti verð.
Búist er við því að Barcelona muni reyna að bjóða 40 milljónir evra á næstu dögum og reyna að freista Bayern með mögulegum bónusgreiðslum.