Jules Kounde, leikmaður Sevilla, er enn efstur á óskalista Chelsea sem mun styrkja vörnina í sumarglugganum.
Blaðamaðurinn virti Fabrizio Romano greinir frá þessu en Kounde vill sjálfur kveðja Sevilla og semja við stærra lið í sumar.
Samkvæmt Romano hefur ekkert breyst hjá Chelsea þrátt fyrir meiðsli Kounde sem þurfti á aðgerð að halda undir lok síðasta tímabils.
Hann er enn efstur á óskalista enska félagsins sem mun gera mikið til að fá hann í sínar raðir fyrir byrjun næsta tímabils.
Enn hefur Chelsea ekki boðið í leikmanninn en Sevilla vill fá 65 milljónir evra sem er minna en kaupákvæði í hans samningi sem hljóðar upp á 85 milljónir evra.
Chelsea mun reyna að bíða og sjá hvort þessi verðmiði geti lækkað en Frakkinn mun verða skotmark númer eitt hjá félaginu í allt sumar.