Hector Bellerin, leikmaður Arsenal, er tilbúinn að gera mikið til komast aftur til Real Betis á næstu leiktíð.
Bellerin pilaði með Betis í heimalandi sínu, Spáni, á síðustu leiktíð á láni en hann á enn eitt ár eftir af samningi sínum í London.
Samkvæmt enskum miðlum er Bellerin tilbúinn að rifta samningi sínum við Arsenal sem myndi kosta hann 5,7 mlljónir punda.
Bellerin fær 100 þúsund pund í vikulaun hjá Arsenal en Arsenal vill fá 8,5 milljónir punda ef leikmaðurinn verður seldur.
Bellerin er enn aðeins 27 ára gamall en hann hefur boðið Arsenal að rifta samningnum svo hann geti komist frítt til Spánar og samið við Betis.
Arsenal er ekki alveg á sömu vegalengd og Bellerin og vill fá þessar rúmlega 8 milljónir punda ef hann á að fara endanlega.
Bellerin hefur spilað með Arsenal síðan hann var 16 ára gamall en meiðsli settu stórt strik í reikning bakvarðarins á ferlinum.