fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433Sport

Gripinn í bólinu með annari konu í gær og gæti verið í enn meiri vandræðum eftir nýjustu fregnir

Helgi Sigurðsson
Laugardaginn 28. maí 2022 10:30

Carroll og Billi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnumaðurinn Andy Carrol er í vandræðum þessa stundina. Í gær birtist mynd af honum í rúmi með konu í steggjaferð kappans. Enski framherjinn á að giftast Billi Mucklow eftir tvær vikur.

Steggjun Carroll fór fram í Dubai en hann lagðist til rekkju með Taylor Jane Wilkey sem sér um skemmtistaði. Carroll hafði komið til Dubai með unnustu sinni en hún hélt heim á leið þegar steggjunin fór af stað.

„Það gerðist ekkert sem ætti að skemma sambandið, þetta var bara fjör,“ sagði Taylor.

Nú kveðst enska götublaðið The Sun hafa í höndunum fleiri myndir af Carrol frá þessu kvöldi. Þar sé meðal annars mynd af Phoebe Robb, vinkonu Taylor, með þeim í rúminu.

Unnusta Carrol sagðist standa með honum eftir að myndin af honum og Taylor lak út í gær og trúir hún því að ekkert óskynsamlegt hafi komið upp á. Það er spurning hvernig hún bregst við nýjustu fregnum.

Carroll hefur á ferli sínum leikið með Liverpool, Newcastle, West Ham og fleiri liðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Jóhann Berg leyfir sér að dreyma – „Við eigum fjóra bikarúrslitaleiki eftir“

Jóhann Berg leyfir sér að dreyma – „Við eigum fjóra bikarúrslitaleiki eftir“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ansi óvæntir orðrómar um Grealish

Ansi óvæntir orðrómar um Grealish
433Sport
Í gær

Athyglisverð mynd kemur fram í sviðsljósið – Átti Manchester United að detta úr leik í gær?

Athyglisverð mynd kemur fram í sviðsljósið – Átti Manchester United að detta úr leik í gær?