Það var Jack Grealish, leikmaður Manchester City, sem stal fyrirsögnunum í Manchesterborg í gær þegar að liðið fagnaði Englandsmeistaratitlinum. Grealish, sem gekk til liðs við Manchester City fyrir tímabilið, var sýnilega vel í því og gerði óspart grín að liðsfélögum sínum.
Grealish skaut á liðsfélaga sína Bernardo Silva og Riyad Mahrez sem voru báðir í byrjunarliði City gegn Aston Villa í lokaumferðinni. Mahrez var skipt af velli í stöðunni 0-1 fyrir Aston Villa á 56. mínútu og Silva var skipt af velli tólf mínútum síðar.
Í myndbandi sem birtist á samfélagsmiðlum mátti sjá Silva spyrja Grealish að því hvaða leyndarmál lægju á bak við sigur Manchester City á Aston Villa sem tryggði þeim titilinn.
,,Það eru tvö leyndarmál. Númer eitt: Riyad, takið hann af velli sem fyrst, hann spilaði eins og Almiron í gær,“ sagði Grealish og náði um leið að skjóta á Miguel Almiron, leikmann Newcastle United. Hann hélt síðan áfram:
,,Númer tvö (sagði Grealish og benti á Silva): Hann hefur verið svo góður á þessu tímabili, náið honum af vellinum,“ en byrjunarliðstækifæri Grealish hafa ekki verið eins mörg og Englendingurinn hefur vonast eftir fyrir tímabilið.
Bernardo Silva tók þessu vel og bætti við: ,,Númer þrjú…haldið Jack Grealish á varamannabekknum.“
Jack Grealish keeps on delivering tonight 🤣 pic.twitter.com/9a47ade1ne
— SPORTbible (@sportbible) May 23, 2022