Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Cristiano Ronaldo, leikmaður liðsins passi inn í sínar áætlanir og hugmyndafræði hjá félaginu nú þegar tekur við uppbyggingarskeið. Þá segir hann að innkoma nýrra leikmanna sé mikilvægur hluti af þeim áætlunum.
Ten Hag sat í gær sinn fyrsta blaðamannafund sem knattspyrnustjóri Manchester United og var þá spurður út í framtíð Ronaldo hjá félaginu og hvort hann passi inn í áætlanir hans hjá félaginu.
,,Að sjálfsögðu,“ var svar Ten Hag sem var síðan spurður hvort það væri lykilatriði fyrir hann og félagið að fá inn nýja leikmenn yfir sumarið. ,,Já það er rétt. Innkoma nýrra leikmanna er mikilvægur hluti í þessu.“
Ronaldo gekk til liðs við Manchester United á ný fyrir nýafstaðið tímabil. Ekki voru allir á eitt sammála hvort innkoma hans hefði verið góð fyrir leikstíl Manchester United en eitt verður ekki tekið af honum og það er sú staðreynd að hann var markahæsti leikmaður liðsins áf tímabilinu.
Þessi vinsæli knattspyrnumaður á eitt ár eftir á samningi sínum við United og hefur yfir tímabilið oft verið orðaður við brottför frá félaginu. Hins vegar er nú talið líklegasta niðustaðan að hann verði áfram í Manchesterborg.
Þá gæti tilkoma Ten Hag hjá Manchester United markað nýtt upphafi hjá Donny van de Beek hjá félaginu en tækifæri hans hafa verið af skornum skammti síðan að hann gekk til liðs við félagið frá Ajax á sínum tíma þar sem að hann spilaði akkúrat undir stjórn Ten Hag.
,,Ég á í mjög góðu sambandi við hann og ég hlakka til að hitta hann aftur á vellinum.“