Dominic Calvert-Lewin, framherji enska úrvalsdeildarfélagsins Everton opnaði sig um mikla erfiðleika sem hrjáðu hann á nýafstöðnu tímabili í ensku úrvalsdeildinni með félagi sínu sem rétt svo slapp við fall á lokametrunum. Dominic segir það hafa bjargað lífi sínu að tala um sínar tilfinningar.
Þessi stóri og stæðilegi enski framherji spilaði aðeins 17 leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu vegna þrálátra meiðsla og skoraði aðeins fimm mörk. Að sama skapi átti Everton í miklum erfiðleikum innan vallar og það reyndist Dominic erfitt og þá ekki síður vegna þess að hann átti frábært síðasta tímabil í deildinni.
,,Meginmarkmiðið varð að því að halda sæti Everton í deildinni og við hefðum ekki náð því án ykkar,“ skrifar Dominic í hjartnæmri færslu sem birtist á samfélagsmiðlum.
Hann greinir síðan í kjölfarið frá erfiðleikum sínum. ,,Ég hef þurft að grafa djúpt á tímabilinu og hef upplifað margar erfiðustu stundir lífs míns hingað til. Kærleikur ykkar og stuðningur hefur komið mér í gegnum þetta og lærdómurinn sem ég dreg frá þessu er sá að allir glíma við einhverja erfiðleika á sinni lífsleið. Erfiðleika sem við hin vitum ekkert um. Það felst engin skömm í því að leita til annarra og tala um tilfinningar sínar og líðan.“
Dominic sendi síðan skilaboð til yngri kynslóðarinnar út frá sinni reynslu: ,,Ég ráðlegg ykkur að tala um hlutina við vin, fjölskyldumeðlim eða bara einhvern sem hlustar á ykkur. Það að tala um hlutina bjargaði lífi mínu.“
View this post on Instagram