Það er kallað á stórskotalið til þess að lýsa úrslitaleik Liverpool og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu sem fer fram á laugardaginn næstkomandi og verður í beinni útsendingu á Viaplay. Þeir Hörður Magnússon og Heimir Hallgrímsson munu lýsa leiknum.
,,Nú eru leikmenn að keppast við að vera ‘fit’ og á meðan að þeir keppast um það eru Hörður Magnússon og Heimir Hallgrímsson að koma sér fyrir á Stade de France þar sem að þeir munu lýsa úrslitaleiknum,“ sagði Hjörvar Hafliðason, umjónarmaður Dr. Football og jafnframt íþróttastjóri Viaplay á Íslandi í hlaðvarpsþættinum í dag.