Marvin Ekpiteta fyrirliði Blackpool ákvað að eyða gömlum hómófóbískum færslum sínum af Twitter eftir að liðsfélagi hans Jake Daniels kom út úr skápnum.
Daniels opnaði sig um kynhneigð sína í viðtali við Sky Sports í vikunni og hefur fengið mikið lof fyrir það. Í mörg ár hefur verið rætt um það að fáir eða engir samkynhneigðir atvinnumenn í knattspyrnu komi fram.
Ekpiteta hafði árið 2013 hrósaði Nígeríu fyrir að banna hjónabönd samkynhneigðra.
Þetta sama ár sagði hann að það væri ógeðslegt og heimskulegt að hafa fimm samkynhneigða karaktera í þáttunum Hollyoaks.
Ekpiteta ákvað að eyða þessum færslum eftir að Daniels kom út úr skápnum en stuðningsfólki Blackpool blöskrar og segir að félagið þurfi að taka á málinu.