Real Madrid tók á móti Getafe í La Liga á Spáni í kvöld.
Heimamenn fóru með 2-0 sigur af hólmi. Casemiro sá til þess að Real leiddi með einu marki í hálfleik. Þá bætti Lucas Vazquez við marki í seinni hálfleik og innsiglaði sigurinn.
Real er langefst á toppi deildarinnar með 72 stig. Liðið er 12 stigum á undan Sevilla sem er í öðru sæti.