Atletico Madrid tapaði óvænt gegn Mallorca í La Liga á Spáni í dag.
Leikið var í Mallorca og unnu heimamenn 1-0 sigur. Vedat Muriqi skoraði eina mark leiksins á 68. mínútu.
Atletico er í fjórða sæti deildarinnar með 57 stig, aðeins stigi á undan Real Betis. Fjögur efstu lið deildarinnar ná sér í þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Mallorca er í sautjánda sæti með 29 stig, stigi frá fyrir ofan fallsvæðið.