Everton tók á móti Manchester United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Leikurinn var ekki sá fjörugasti og var lítið um góð færi á báða bóga. Gestirnir voru meira með boltann en ógnuðu lítið.
Eina mark leiksins gerði hinn ungi Anthony Gordon á 27. mínútu.
Heimamenn börðust fyrir stigunum í lokin, enda eru þau ansi mikilvæg í fallbaráttunni. Everton er í sautjánda sæti með 28 stig, nú 4 stigum á undan Burnley sem á þó leik til góða.
Man Utd er í sjöunda sæti með 51 stig, 3 stigum á eftir Tottenham og Arsenal sem eru í fjórða og fimmta sæti. Arsenal á hins vegar tvo leiki til góða á Man Utd og Tottenham einn.