fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Enski boltinn: Arsenal tapaði öðrum leiknum í vikunni – Chelsea rótburstaði Southampton

Helgi Sigurðsson
Laugardaginn 9. apríl 2022 16:04

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þremur leikjum er nýlokið í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal tók á móti Brighton og tapaði öðrum leik sínum í röð. Gestirnir komust yfir á 29. mínútu með góðu skoti frá Leandro Trossard. Enock Mwepu tvöfaldaði forskot Brighton með laglegu marki um miðjan seinni hálfleik.

Martin Ödegaard minnkaði muninn fyrir Arsenal seint í leiknum og fengu heimamenn tækifæri til að jafna í blálokin. Allt kom hins vegar fyrir ekki.

Arsenal er í fimmta sæti deildarinnar með 54 stig, jafnmörg og Tottenham sem er með betri markatölu.

Mynd/Getty

Þá vann Chelsea 0-6  stórsigur á Southampton. Marcos Alonso og Mason Mount komu Chelsea í 0-2 á fyrsta stundarfjórðungi leiksins. Timo Werner bætti við þriðja markinu eftir rúmar 20 mínútur. Tíu mínútum síðar bætti Kai Havertz svo við fjórða markinu.

Fjörið hélt áfram í upphafi seinni hálfleiks og bætti Werner við fimmta marki Chelsea á 49. mínútu. Mount skoraði svo sjötta og síðasta mark leiksins á 54. mínútu.

Mynd/Getty

Loks vann Leeds öruggan sigur á Watford á útivelli. Raphinha skoraði eina mark fyrri hálfleiksins. Rodrigo og Jack Harrison bættu svo við mörkum í þeim seinni.

Leeds er komið með 33 stig í sextánda sæti deildarinnar. Watford er með 22 stig í nítjánda sæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Í gær

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls