fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
433Sport

Viðurkennir að hann öfundi Ronaldo – Væri til í magavöðvana og líkama hans

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 8. apríl 2022 09:20

Cristiano Ronaldo og Georgina Rodriguez / Skjáskot: Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wayne Rooney stjóri Derby viðurkennir að hann öfundi Cristiano Ronaldo og segir að allir knattspyrnumenn í heiminum fyrir utan Lionel Messi geri það.

Ronaldo framherji Manchester United skaut fast til baka á Wayne Rooney fyrrum samherja sinn eftir orð hans í sjónvarpi.. Rooney fyrrum fyrirliði Manchester United segir að félagið eigi að losa sig við Paul Pogba og Cristiano Ronaldo í sumar.

„Ronaldo hefur verið að skora mörk. Ef þú horfir samt á framtíð félagsins þá ertu með yngri og hungraða leikmenn. Þú þarft menn sem virka á næstu árum,“ sagði Rooney á Sky Sports.

Getty Images

„Ronaldo er að eldast, hann er ekki sami leikmaður og á áður. Það er auðvitað bara eðlilegt, hann skorar mörk en það þarf meira í leiknum í dag. Þú þarft unga og hungraða leikmenn.“

Rooney birti svo mynd af sér í myndveri á Instagram og þar mætti Ronaldo til að svara fyrir. „Tveir afbrýðisamir,“ skrifar Ronaldo við myndina og birtir þar með mynd af augum sem horfa á þá félaga.

Rooney var spurður út í ummæli Ronaldo. „Það er ekki til sá fótboltamaður sem öfundar ekki Cristiano Ronaldo,“ segir Rooney.

„Ferilinn er magnaður, allir titlarnir, magavöðvarnir, líkaminn. Allir leikmenn fyrir utan Lionel Messi öfunda Ronaldo.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar

Þetta stendur á veggnum þegar leikmenn City fara á æfingar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hartman í Val

Hartman í Val