fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Fíflið sem skemmdi allt í gær skammaðist sín ekki neitt – Sjáðu hvað gerðist

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 8. apríl 2022 08:52

Stuðningsmaðurinn kunni ekki að skammast sín. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leik West Ham og Lyon í Evrópudeildinni í gær lauk með jafntefli. Aaron Cresswell í liði heimamanna fékk að líta beint rautt spjald á lokamínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks fyrir að brjóta á síðastast sóknarmanni Lyon en staðan var markalaus þegar flaut var til loka fyrri hálfleiks.

Jarod Bowen kom 10 mönnum West Ham í forystu á 52. mínútu og gerði allt vitlaust á London vellinum. Tanguy Ndombele, sem er í láni hjá Lyon frá Tottenham, jafnaði á 66. mínútu þegar hann fylgdi eftir fyrirgjöf Tete sem Alphonse Areola, markvörður West Ham, sló út í teiginn.

West Ham menn héldu áfram að sækja þrátt fyrir að vera manni færri en hvorugu liði tókst að bæta við marki og lokatölur 1-1 jafntefli. Liðin mætast aftur í næstu viku.

Seint í leiknum átti sér stað ótrúlegt atvik en West Ham þjarmaði að marki Lyon, þá ákvað stuðningsmaður West Ham að hlapupa inn á völlinn og þar með stöðva sókn liðsins.

Ljóst er stuðningsmenn West Ham hreinlega hata þennan umrædda stuðningsmann enda hefði sigurmark komið sér vel fyrir seinni leikinn. Drengurinn ungi skammaðist sín ekkert og gaf stuðningsmönnum fingurinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

KSÍ skoðar að fara í herferð vegna veðmálafíknar

KSÍ skoðar að fara í herferð vegna veðmálafíknar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Er hiti á Arnari í starfi? – „Þá heimta ég ekki að þættinum sé cancelað og að Gísli Einarsson sé rekinn“

Er hiti á Arnari í starfi? – „Þá heimta ég ekki að þættinum sé cancelað og að Gísli Einarsson sé rekinn“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony