Victor Anichebe, fyrrum framherji enska úrvalsdeildarfélagsins Everton, hefur kallað eftir því að Frank Lampard, knattspyrnustjóri liðsins sem var ráðinn inn fyrr á tímabilinu, verði látinn fara eftir 3-2 tap liðsins gegn Burnley í gær. Everton er í harðri fallbaráttu og missti af mikilvægum stigum í gærkvöldi.
Anichebe virtist bálreiður yfir leiknum í gærkvöldi en á meðan honum stóð setti hann nokkrar færslur í sögu sína á Instagram.
,,Leikmennirnir eru ekki nógu góður en Frank er það ekki heldur, eins mikið og ég elska hann sem leikmann og hann virðist vera toppnáungi. Everton mun 100% falla ef ekki verða gerðar breytingar,“ var á meðal þess sem Anichebe sett inn á samfélagsmiðla í gærkvöldi.
Everton er sem stendur í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 25 stig eftir 29 leiki, einu stigi frá fallsæti nú þegar að liðið á eftir að leika níu leiki.