Lúxusíbúð í eigu Phil Neville fyrrum leikmanns Manchester United og nú þjálfara Inter Miami selst ekki.
Íbúðin er í miðborg Manchester en Neville og eiginkona hans settu hana á sölu fyrir tíu árum.
Fyrst um sinn báðu hjónin um 4 milljónir punda fyrir íbúðina sem er í blokk eða tæpar 700 milljónir.
Verðmiðinn hefur svo lækkað hratt undanfarið og nú vill neville fá 2,75 milljónir punda. Verðið hefur því lækkað um 212 milljónir.
Íbúðin er staðsett í Deansgate hverfinu í Manchester en verðið er talið of hátt hjá Neville þrátt fyrir lækkunina.