Í spá Fréttablaðsins sem birtist á vef blaðsins í dag er Breiðablik spáð fjórða sæti í Bestu deild karla.
Fréttablaðið hefur undanfarna daga verið með spá fyrir sumarið en deildin fer af stað þann 18 apríl.
Albert Brynjar Ingason er sérfræðingur blaðsins og hann fer yfir lið Blika fyrir sumarið. „Ef maður skoðar undirbúningstímabilið þá litu þeir virkilega vel út í Atlantic-bikarnum. Eftir það mót skilur maður að Lengjubikarinn hafi ekki gengið sem best. Þeir byrjuðu undirbúningstímabilið fyrr en aðrir og æfðu á fullri keyrslu. Ég horfi því meira í mjög góða frammistöðu þeirra í æfingamótinu úti þar sem þeir mátuðu sig við sterka andstæðinga;“ segir Albert í Fréttablaði dagsins.
Blikar ætla sér sigur í deildinni en liðið komst nálægt þeim stóra í fyrra en tapaði leik í næst síðustu umferð.
„Blikar hafa oft verið þekktir fyrir að koðna niður og missa taktinn þegar þeir eru nálægt þessu. Svo finna þeir oft taktinn þegar þetta er ekki lengur möguleiki. Í fyrra var það byrjunin sem var slök og liðið vann bara einn af fyrstu fjórum leikjunum. Þeir eru best spilandi liðið á landinu og með skemmtilega hugmyndafræði. Ef þeir byrja mótið vel eru þeir líklegir til þess að landa sigri.“