fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
433Sport

Liverpool að ganga frá kaupum á nýjum leikmanni – Skrifar undir samning til ársins 2027

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 7. apríl 2022 13:38

Gettyimages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool er að ganga frá kaupum á sóknarsinnaða miðjumanninum Fábio Carvalho frá enska B-deildar liðinu Fulham. Það er knattspyrnusérfræðingurinn virti, Fabrizio Romano sem greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum.

Romano segir búið að ganga frá öllum lausum endum á milli Liverpool, leikmannsins og Fulham. Carvalho hefur nú þegar lokið læknisskoðun hjá félaginu og verður á samningi hjá félaginu til ársins 2027.

Liverpool hefur ekki í hyggju lána leikmanninn frá félaginu eftir því sem Romano kemst næst en tilkynnt verður endanlega um félagsskiptin í maí.

Carvalho er fæddur og uppalinn í Torres Vedras í Portúgal en fluttu ungur að árum til Englands. Hann á að baki 37 leiki fyrir aðallið Fulham, hefur skorað 9 mörk og gefið sjö stoðsendingar. Þá hefur hann bæði leikið með yngri landsliðum Englands og Portúgal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi
433Sport
Í gær

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“
433Sport
Í gær

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“