Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir því Hvít-Rússneska á hlutlausum vell í Belgrad í undankeppni HM 2023 í dag. Leikurinn hefst klukkan 16:00.
Engir áhorfendur verða á leiknum en bæði FIFA og UEFA hafa meinað Hvít-Rússum að spila á heimavelli sökum íhlutunar hvít-rússneska stjórnvalda í innrás Rússa í Úkraínu.
Ísland er fyrir leikinn í 2. sæti síns riðils með níu stig eftir fjóra leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Hollands en með leik til góða.
Byrjunarlið Íslands:
Markvörður:
Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Varnarlína:
Sif Atladóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Guðrún Arnardóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir
Miðja:
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (f)
Dagný Brynjarsdóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Sókn:
Sveindís Jane Jónsdóttir
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Agla María Albertsdóttir