Jude Bellingham vonarstjarna Englands í knattspyrnu hefur fundið ástina í örmum Asantewa Chitty sem er fyrirsæta.
Bellingham er 18 ára gamall og leikur með Borussia Dortmund en hann hefur átt fast sæti í enska landsliðshópnum.
Chitty er einkar vinsæl á samfélagsmiðlum og gerir það gott bæði á Instagram og TikTok.
Færslur hennar á TikTok raða iðullega inn „lækum“ en Bellingham tókst að heilla hana upp úr skónum.
Ensk blöð fjalla um málið en Bellingham og Chitty hafa ekki sést saman opinberlega. Það er þó talið líklegt að Chitty mæti á Heimsmeistaramótið í Katar undir lok árs.