Matt Le Tissier besti leikmaður í sögu Southampton hefur sagt af sér sem sendiherra félagsins. Kemur þetta í kjölfar þess að hann tók undir samsæriskenningar um innrás Rússa í Úkraínu.
Le Tissier hefur ákveðið að stíga til hliðar og hefur eytt færslu sinni sem var afar umdeild.
Le Tissier hefur barist hart gegn takmörkunum á lífi fólks í gegnum COVID-19 faraldurinn og neitar að láta bólusetja sig.
Færslan sem Le Tissier deildi innihélt fullyrðingar að fjölmiðlar hefðu logið í COVID faraldinum og fleiri málum en nú ætti að trúa öllu um innrás Rússlands í Úkraínu.
Rússar réðust inn í Úkraínu fyrir rúmum mánuði síðan og hefur fjöldi saklausra borgara fallið í átökunum síðan þá. Le Tissier ákvað að segja af sér hjá Southampton til að draga félagið ekki í svaðið.