Lucinda Strafford sem öðlaðist heimsfrægð í þáttunum Love Island hefur ákveðið að sparka knattspyrnustjörnunni, Aaron Connolly út úr rúmi sínu.
Straddford og Connolly höfðu verið par um nokkurt skeið en sambandið er á enda.
Bæði eru þau 22 ára gömul en hafa mikið verið í sviðsljósinu fyrir ástarsamband sitt. Connolly gæti átt bjarta framtíð fyrir sér en hann er í eigu Brighton en er á láni hjá Middlesbrough.
Lucinda er þekktust fyrir þátttöku í Love Island en hún er sögð hafa verið í sambandi með Connolly þegar þættirnir voru teknir upp. Hún hefur hins vegar ávallt hafnað því.