Bolton og Portsmouth gerðu 1-1 jafntefli í ensku C-deildinni í kvöld.
Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn með fyrrnefnda liðinu.
Aiden O’Brien kom Portsmouth yfir á 50. mínútu en Kieran Sadlier jafnaði metin af vítapunktinum á 77. mínútu.
Jón Daði og félagar sitja í ellefta sæti deildarinnar með 60 stig.