fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Segir Hödda Magg hafa búið leigulaust í hausnum á sér – Hefur séð menn væla yfir ósanngjörnu tali

433
Sunnudaginn 10. apríl 2022 13:00

Hörður Magnússon. © 365 ehf / Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Albert Brynjar Ingason var gestur í þættinum Íþróttavikan með Benna Bó sem var sýndur á Hringbraut á föstudagskvöld. Albert er gamall markahrókur sem hefur nú tekið að sér hlutverk í fjölmiðlum þar sem hann hefur gert garðinn frægan í hlaðvarpsþættinum Dr. Footbal. Auk þess verður hann einn af sérfræðingum í yfirferðarþáttum um Bestu deildina í sumar.

Albert segir gaman að vera kominn þarna megin við borðið og viðurkennir að á sínum tíma sem leikmaður hafi hann fylgst vel með því hvað sérfræðingar í setti sögðu um hans frammistöðu innan vallar.

,,Jájá ég gerði það alveg og það gat alveg farið í hausinn á mér. Maður hefur séð leikmenn væla yfir því að þeir fái ósanngjarna umfjöllun í fjölmiðlum og geta eiginlega ekki tekið því.“

Albert segir leikmenn alltaf eiga rétt á því að vera gagnrýndir ef þeir eru ekki að skila sínu.

,,Höddi Magg var svolítið með mína tölfræði á heilanum, að ég gæti aldrei skorað yfir níu mörk því ég stoppaði alltaf þar. Hann bjó leigulaust í hausnum á mér á sínum tíma. Þegar að ég komst upp í níu mörk var Höddi mættur í hausnum á mér,“ sagði Albert Brynjar Ingason í Íþróttavikunni með Benna Bó en þáttinn í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Í gær

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls
Hide picture