Töluverður áhugi er fyrir því að krækja í Jesse Lingard frá Manchester United í sumar ef marka má frétt Mirror.
Samningur Lingard á Old Trafford rennur út í sumar. Þá getur leikmaðurinn valið sér félag til að ganga til liðs við á frjálsri sölu.
Á Englandi eru það West Ham og Newcastle sem eru talin áhugasöm. Lingard lék á láni með fyrrnefnda liðinu seinni hluta síðustu leiktíðar.
Þá eru ítölsku stórveldin Juventus, AC Milan og Roma einnig öll áhugasöm.
Lingard hefur verið í algjöru aukahlutverki hjá Man Utd á þessari leiktíð. Þrátt fyrir það fékk hann ekki að fara í janúar.