Breiðablik er Lengjubikarmeistari í kvennaflokki eftir sigur á Stjörnunni í Garðabæ í kvöld.
Hildur Antonsdóttir kom Blikum yfir á 8. mínútu. Eftir tæpan 20 mínútna leik jöfnuðu Stjörnukonur. Þá var á ferðinni Jasmín Erla Ingadóttir með mark.
Taylor Marie Ziemer kom Breiðabliki yfir á nýjan leik skömmu síðar.
Fleiri urðu mörkin ekki. Lokatölur 2-1 fyrir Blika sem eru Lengjubikarsmeistarar árið 2022.