Portúgal tryggði sig inn á Heimsmeistaramótið í Katar í vikunni með góðum sigri á Norður-Makedóníu. 37 ára gamall Ronaldo verður því á stærsta sviðinu. Öll portúgalska þjóðin fylgdist með.
Leikurinn fór fram á Drekavöllum í Portúgal en skilti sem tvær konur mættu með á völlinn hefur vakið meiri athygli en annað.
„Ronaldo gefðu okkur sæðið þitt,“ stóð á skiltinu góða sem konurnar mættu með á völlinn.
Sundmennirnir í pung Ronaldo virðast virka vel því unnusta hans Georgina Rodriguez á von á tvíburum en fyrir á Ronaldo tvíbura með staðgöngumóður. Ronaldo verður sex barna faðir innan tíðar.
Ekki er talið líklegt að konurnar verði að ósk sinni um að Ronaldo gefi þeim sæði sitt.