Kristján Flóki Finnbogason framherji KR verður ekki með liðinu næstu vikurnar. Besta deildin fer af stað eftir 17 daga.
Fótbolt.net segir frá en þar kemur fram að Kristján Flóki hafi fótbrotnað í æfingaleik í gær.
„Þetta lítur illa út, mjög slæmt. Flóki er í gifsi núna og er að bíða eftir aðgerð. Þetta er fótbrot, eitthvað bein sem ég kann ekki að nefna en er utanvert á leggnum. Hann fékk greiningu seint í gærkvöldi og er að bíða núna eftir svari frá læknum hvenær hann kemst í aðgerð,“ sagði Rúnar.
Kristján Flóki meiddist í æfingaleik gegn HK en hann hafði spilað vel í vetur.