Aubameyang gekk til liðs við Barcelona í janúarglugganum eftir fjögur ár hjá Arsenal. Hann hefur byrjað af krafti hjá spænska stórveldinu og hefur skorað 7 mörk fyrir félagið.
Toni Kroos, leikmaður erkifjendanna í Real Madrid, er ekki hrifinn af Aubameyang eftir að sá síðarnefndi tók fram grímu er hann fagnaði marki hjá Dortmund. Kroos vill meina að Auba sé ekki góð fyrirmynd.
„Aubameyang fagnaði einu sinni og tók fram grímu. Þar fékk ég nóg. Mér finnst þetta sýna að hann er ekki góð fyrirmynd. Þvílík vitleysa.“
Kroos once said that Aubameyang's celebrations were 'nonsense'.
On Sunday, Auba broke out the Goku against Kroos in El Clasico 🥶 pic.twitter.com/FGMPhcsC3R
— ESPN FC (@ESPNFC) March 22, 2022