Mohamed Salah, leikmaður Liverpool og egypska landslðisins í knattspyrnu, gæti lagt landsliðsskóna á hilluna eftir nýjustu vonbrigði egypska landslðisins sem missti af sæti á Heimsmeistaramótinu í Katar eftir tap í úrslitaleik gegn Senegal.
Hljómar kunnuglega en Egyptaland tapaði fyrr á árinu fyrir Senegal í úrslitaleik Afríkukeppninnar og því er skammt stórra högga á milli hjá liðinu.
Í myndbandi af því þegar að Salah ræddi við liðsfélaga sína í egypska landsliðinu segir hann það hafa verið heiður að spila með þeim. Myndbandið hefur nú farið í dreyfingu á samfélagsmiðlum.
,,Það hefur verið heiður að spila með ykkur og ég er mjög stoltur af því, sama hvort ég verði með ykkur eða ekki í framtíðinni,“ segir Salah í myndbroti sem hefur farið í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Það gæti því vel verið að Salah muni láta gott heita með landsliðinu og einbeita sér frekar að því að spila fyrir félagslið sitt. Alls hefur Salah leikið 84 leiki fyrir A-landslið Egyptalands.