Birkir Bjarnason skoraði sigurmark Adana Demirspor í 2-1 sigri gegn Istanbul Basaksehir í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.
Birkir kom inn á sem varamaður á 64. mínútu og rúmum stundarfjórðungi síðar skoraði hann sigurmark leiksins.
Íslenski landsliðsmaðurinn hefur átt fínasta tímabil með Adana, skorað fimm mörk í 27 leikjum í deildinni.
Adana situr í fimmta sæti deildarinnar með 48 stig, stigi frá Evrópusæti.