Divock Origi er líklega á förum frá Liverpool að sögn Football Insider.
Framherjinn hefur lítið sem ekkert komið við sögu á þessari leiktíð og ætlar sér að róa á önnur mið í leit að spiltíma.
Þrátt fyrir að hafa aldrei orðið lykilmaður á Anfield hefur Origi skorað mörk á mikilvægum augnablikum í treyju Liverpool.
Hann skoraði til að mynda í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Tottenham árið 2019. Liverpool vann leikinn 2-0.
Origi er 26 ára gamall.