Sara Björk Gunnarsdóttir sneri aftur á knattspyrnuvöllinn eftir langt hlé í 0-3 sigri Lyon gegn Dijon í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Sara lék allan seinni hálfleikinn.
Lyon er á toppi deildarinnar með 49 stig, 3 stigum á undan Paris Saint-Germain. Félagið vonast einmitt til að endurheimta Frakklandsmeistaratitilinn af PSG í vor.