Dóra María Lárusdóttir hefur lagt fótboltaskóna á hilluna, 36 ára gömul. Hún staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.
Þessi fyrrum landsliðskona hættir í fótbolta sem Íslandsmeistari með Val. Hún skoraði alls 94 mörk í 269 leikjum í efstu deild á Íslandi. Dóra María varð átta sinnum Íslandsmeistari.
Þá á hún að baki 114 landsleiki.
Í atvinnumennsku lék Dóra María með Djurgarden í Svíþjóð og Vitoria í Brasilíu.
Þá spilaði miðjumaðurinn með Rhode Island Rams í bandaríska háskólaboltanum.