fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Íslendingar áberandi í Danmörku en fyrir mjög mismunandi hluti

Helgi Sigurðsson
Föstudaginn 18. mars 2022 19:42

Ísak Óli Ólafsson í U-21 árs landsleik. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Esbjerg og Lyngby áttust við í Íslendingaslag í dönsku B-deildinni í kvöld.

Ísak Óli Ólafsson var í byrjunarliði Esbjerg en Sævar Atli Magnússon byrjaði hjá Lyngby. Þá er Freyr Alexandersson þjálfari síðarnefnda liðsins.

Ísak Óli fékk beint rautt spjald á 37. mínútu, skömmu eftir að Lyngby hafði komist yfir. Hann braut á Sævari Atla sem aftasti varnarmaður. Það var því á brattann að sækja fyrir heimamenn í Esbjerg frá þeim tímapunkti. Sævar Atli bætti svo við öðru marki Lyngby á 67. mínútu en liðið vann að lokum 0-3.

Freyr Alexandersson og Sævar Atli Magnússon. Mynd: Lyngby

Aron Sigurðarson var þá í byrjunarliði Horsens í 1-4 sigri gegn Nyköping í sömu deild. Aron lék allan leikinn.

Þetta var lokaumferð á hefðbundnu tímabili B-deildarinnar. Nú verður deildinni skipt upp í tvö hluta, sex lið berjast um að fara upp um deild og sex lið um að halda sæti sínu í deildinni.

Lyngby hafnar í öðru sæti deildarinnar, Horsens í fjórða og Esbjerg í tíunda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Loksins búið að nafngreina nýjustu kærustu stjörnunnar – Hefur sést á heimili hans á árinu

Loksins búið að nafngreina nýjustu kærustu stjörnunnar – Hefur sést á heimili hans á árinu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fyrrum stjóri Manchester United staðfestir viðræður

Fyrrum stjóri Manchester United staðfestir viðræður
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“