Bræðurnir Nick og Christian Candy eru taldir hafa áhuga á að kaupa enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea. BBC fjallar um málið
Chelsea reynir nú að finna nýja eigendur eftir að eigur Roman Abramovich voru frystar í síðustu viku eins og flestum er orðið kunnugt um. Það var gert vegna tengsla hans við Vladimir Putin. Félagið ætlar að hlusta á tilboð í vikunni sem nú er nýhafinn. Ljóst er að Abramovich mun ekkert hagnast á sölunni.
Candy-bræðurnir hafa verið stórtækir á fasteignamarkaðnum og hafa byggt lúxusíbúðir í Lundúnum og Bandaríkjunum. Þeir eru taldir vera meira en milljarða punda virði.
Árið 2010 töpuðu bræðurnir fleiri milljónum Bandaríkjadala á eign í Beverly Hills í Kaliforníu en það var að stórum hluta vegna falls Kaupþings banka á Íslandi, eins af fjárfestum bræðranna.
Nick Candy hefur verið stuðningsmaður Chelsea alla tíð. Það ætti að heilla stuðningsmenn félagsins.