fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Kom í veg fyrir að Henderson losnaði frá Man Utd

Helgi Sigurðsson
Miðvikudaginn 9. febrúar 2022 18:15

Dean Henderson. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Martin Dubravka, markvörður Newcastle, hafnaði því að ganga til liðs við Manchester United í janúarglugganum. Hefði hann verið hluti af skiptidíl þar sem Newcastle vildi fá Dean Henderson, markvörð Man Utd, í staðinn. Manchester Evening News segir frá þessu.

Newcastle vildi fá Henderson í sínar raðir til að standa í rammanum út þessa leiktíð. Í staðinn hefði Dubravka sömuleiðis verið lánaður á Old Trafford út tímabilið.

Hinn 33 ára gamli Dubravka vildi þó heldur halda sæti sínu sem aðalmarkvörður Newcastle en að setjast á bekkinn fyrir aftan David De Gea hjá Man Utd.

Dubravka.

Henderson er 24 ára gamall og hefur barist við De Gea um stöðu aðalmarkvarðar frá því á síðustu leiktíð. Honum hefur tekist að brjóta sig inn í byrjunarliðið við og við en er þó yfirleitt markvörður númer tvö.

Henderson átti góðu gengi að fagna með Sheffield United leiktíðina 2019-2020 í ensku úrvalsdeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum
433Sport
Í gær

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri

Eiginkonan umdeilda tjáði sig í gærkvöldi – Hefur áður kallað eftir brottrekstri
433Sport
Í gær

Skilaboð unga drengsins segir allt um hörmungarnar í vetur

Skilaboð unga drengsins segir allt um hörmungarnar í vetur