Tónlistarstreymisveitan Spotify og spænska stórveldið Barcelona eru hársbreidd frá þvá að gera á milli sín samning sem færir Barcelona því sem nemur 40 milljarða íslenskra króna.
Samningurinn myndi gilda til þriggja ára og mun merki Spotify verða á treyjum og æfingafatnaði Barcelona. Þá heldur RAC1 því fram að Spotify fái einnig völd yfir nafninu á heimavelli Barcelona, Nou Camp.
Allt þar til á árinu 2006 hafði Barcelona neitað að bera merki styrktaraðila á treyjum sínum, Unicef varð ljótlega áberandi á búningum félagsins án gjalds en árið 2011 mátti sjá merki Qatar Foundation á búningum félagsins.
Núverandi samningur Barcelona við aðal styrktaraðila sinn, Rakuten, er að renna út og nú virðist Spotify ætla gerast aðal styrktaraðili félagsins sem hefur verið í fjárhagskröggum undanfarið.