Ellefu konur hafa stigið fram og sakað Marc Overmars, fyrrum yfirmann knattspyrnumála hjá hollenska stórliðinu Ajax um kynferðislega áreitni. Þetta kemur fram í úttekt hollenska miðilsins NRC um málið í dag.
Overmars sagði af sér um helgina og samkvæmt yfirlýsingu Ajax var það vegna ásakana um óviðeigandi hegðun í garð samstarfskvenna hans hjá Ajax.
Konurnar sem saka Overmars um kynferðislega áreitni vildu ekki koma fram undir nafni en þær segja hann hafa áreitt þær í samskiptum, meðal annars með því að senda þeim óumbeðnar myndir af getnaðarlim sínum.
Þá sökuðu þrjár af þeim ellefu konum sem stigu fram, Overmars um að hafa beitt þær kynferðislegu ofbeldi á skrifstofum Ajax.
Konurnar létu það einnig í ljós að menningin innan Ajax væri karllæg, niðrandi ummæli um konur og klæðaburð þeirra væru algeng hjá félaginu.
Þá lýsti ein kona því yfir að leikmaður Ajax hefði áreitt sig kynferðislega, jafnframt sögðu þær allar frá því að þær þorðu ekki að tilkynna eða mótmæla slíkri hegðun sökum ótta við að missa starf sitt.