Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United og unnusta hans Georgina Rodriguez, vilja ekki sjá það að börn þeirra leiki sér með síma eða spjaldtölvu í frítíma sínum, þess í stað er meðal annars haft ofan af fyrir þeim með því að rétta þeim blað og liti.
Alls eru fjögur börn á heimili Ronaldos og Georginu og tvö á leiðinni. Ronaldo átti fyrir þrjú börn með staðgöngumóður og saman eiga þau fjögurra ára dóttur.
,,Heima við erum við ekki eins og týpiskir foreldrar sem rétta börnum sínum spjaldtölvur og síma til að hafa ofan af fyrir þeim. Hjá okkur eru það litir og blað og sams konar hlutir,“ greinir Georgina frá í raunveruleikaþáttum um líf fjölskyldunnar sem eru aðgengilegir á streymisveitu Netflix.
Elsti sonur Ronaldo verður 12 ára á næstunni og hann hefur enn ekki fengið sinn fyrsta síma.