Paris Saint-Germain tók á móti St. Etienne í frönsku úrvalsdeildinni í gær.
Eftir að hafa lent 0-1 undir snemma leiks sneri PSG leiknum við með tveimur mörkum frá Kylian Mbappe og einu frá Danilo. Lokatölur urðu 3-1.
Stoðsending Mbappe í marki Danilo var ansi falleg og hefur vakið mikla athygli. Hana má sjá neðst í fréttinni.
Mbappe hefur farið á kostum með PSG frá komu sinni árið 2017 en hann verður samningslaus í sumar. Talið er að hann endi hjá Real Madrid.
My lord Mbappe that’s the best assist I’ve seen in ages pic.twitter.com/MZqajIwPCk
— B (@lfcbennn) February 26, 2022