Manchester United hefur áhuga á þeim Cody Gakpo hjá PSV í Hollandi og Palhinha hjá Sporting í Portúgal. Mirror segir frá þessu.
Gakpo leikur yfirleitt á vinstri væng en Palhinha á miðjunni.
Man Utd hefur fylgst mikið með hinum 22 ára gamla Gakpo á þessari leiktíð og gæti freistað þess að næla í hann í sumar. Hollendingurinn hefur skorað 7 mörk og lagt upp 12 í 18 leikjum í hollensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Palhinha gæti þá einnig farið til Man Utd í sumar. Þessi 26 ára gamli leikmaður er með klásúlu upp á 50 milljónir punda í samningi sínum hjá Sporting. Það er þó talið að félagið sé tilbúið að sleppa honum fyrir töluvert lægri fjárhæðir eða um 20 milljónir punda.
Man Utd hefur ollið vonbrigðum á tímabilinu og ljóst að félagið vill styrkja sig í sumar.