Leeds tekur á móti Manchester United í sögufrægum slag í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Daniel James fór frá Man Utd til Leeds fyrir þessa leiktíð. Hann hafði leikið með fyrrnefnda félaginu frá árinu 2019.
James segir að hann beri virðingu fyrir Man Utd en að hann muni fagna ef hann skorar í leiknum á morgun. ,,Mun ég fagna ef ég skora? Auðvitað. Ég ber ekkert hatur í garð Man United. Ég fór á góðum nótum og á enn marga vini þar. Það er frábær tilfinning að skora. Auðvitað mun ég fagna.“
Leikurinn á morgun er mikilvægur fyrir bæði lið. Man Utd er í hörku Meistaradeildarbaráttu á meðan Leeds freistar þess að fjarlægjast fallsvæðið frekar.
Leikurinn hefst klukkan 14 á morgun að íslenskum tíma.