Hallsteinn Arnarson skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann furðar sig á því að Klara Bjartmarz framkvæmdarstjóri KSÍ sé ekki sett til hliðar. Klara hefur neitað að stíga til hliðar þrátt fyrir ákall um slíkt síðasta haust þegar sambandið tókst á við málefni landsliðsmanna.
Formaður sambandsins og öll stjórnin sagði af sér síðasta haust vegna meintra brota landsliðsmanna. Flestir úr þessari stjórn hafa sagt starfi sínu lausu og ætla ekki að starfa áfram en Hallsteinn furðar sig á því að Borghildur Sigurðardóttir ætli að gefa kost á sér áfram en hún er varaformaður sambandsins og hefur verið undanfarin ár.
Hallsteinn er með executive MBA gráðu í íþróttastjórnun og er virkur meðlimur í nokkrum leiðandi íþróttafagsamtökum á heimsvísu að eigin sögn.
„Ég held að það hafi komið flestum á óvart að fyrri stjórn KSÍ skyldi ekki óska eftir því við framkvæmdastjóra sambandsins að hún myndi þegar hætta eftir að meintu ofbeldismálin komu upp á yfirborðið. Framkvæmdastjórinn sjálfur virðist neita að horfast í augu við raunveruleikann og hefur sagst ekki ætla að segja af sér vegna málanna. Eftir leyfi var hún allt í einu komin aftur til starfa. Í viðtali við framkvæmdastjórann sagðist hún hafa vitað af málum en vísað þeim á aðra eða í ferli. Spurð sagðist hún hvorki hafa séð ástæðu til að vinna sjálf í málunum né spyrja út í þau,“ skrifar Hallsteinn í grein sinni og vísar þar til Klöru Bjartmarz.
Ársþing KSÍ fer fram eftir rúma viku en þar berjast Vanda Sigurgeirsdóttir og Sævar Pétursson um stólinn. Einnig er kosið til stjórnar. Hallsteinn segir að fyrsta verk hjá nýrri stjórn KSÍ eigi að að vera að skipta um framkvæmdarstjóra.
„Sum mál sem koma upp á vinnustöðum eru það alvarleg að bregðast verður við þeim sem fyrst og því verður að vera þar til staðar framkvæmdastjóri sem hefur dómgreind til að meta málin fljótt og rétt, og getur og er tilbúinn að skerast strax í þau í stað þess að vísa þeim bara frá sér og axla enga ábyrgð.“
„Ég held að skynsamt fólk sjái nú í gegnum það ætli framkvæmdastjórinn að bera fyrir sig verklagi eða verkaskiptingu. Eigi að gera hana að kvenkyns fórnarlambi í meintri karlamenningu hjá sambandinu, þá erum við nú stutt komin í jafnréttismálum kynjanna. Það hlýtur að verða fyrsta verk nýrrar stjórnar KSÍ að ráða nýjan framkvæmdastjóra.“
Hallsteinn víkur næst að Borghildi Sigurðardóttir sem gefur kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn KSÍ.
„Viðbrögð fyrri stjórnar vegna meintu ofbeldismálanna hafa stórskaðað knattspyrnuhreyfinguna hér heima. Samt ætlar þáverandi og núverandi varaformaður að bjóða sig fram til áframhaldandi setu í stjórn sambandsins. Hvernig í ósköpunum ætlar næsta stjórn KSÍ að bæta ímynd og orðspor sambandsins og endurheimta traust og virðingu með sömu tvær manneskjur innanborðs og voru við stjórnvölinn í lykilstjórnendastöðum hjá sambandinu þegar upp komst um meintu ofbeldismálin?“
Að endingu segir Hallsteinn í grein sinni í Morgunblaðinu. „Auðvitað eiga bæði framkvæmdastjórinn og varaformaðurinn að sjá að sér, stíga strax til hliðar og hleypa að nýju fólki.“