Alejandro Garnacho birti mynd af sér á Instagram í gær þar sem hann er að fá sér húðflúr.
Þetta hefur vægast sagt valdið reiði á meðal einhverra stuðningsmanna Manchester United, en leikmaðurinn er á mála hjá félaginu.
Garnacho er aðeins átján ára gamall og ein af vonarstjörnum United.
Liðið á leik gegn Wolves í hádeginu á laugardag í ensku úrvalsdeildinni og vilja stuðningsmennirnir meina að ekki sé sniðugt að fá sér húðflúr tveimur dögum fyrir leik.
Dæmi hver fyrir sig um hversu hættulegt þetta athæfi Garnacho er skömmu fyrir leik. Færslu hans má sjá hér að neðan.